Þurfti að tvíkúpla 16. nóvember 2004 00:01 "
Bíllinn minn er fjórhjóladrifinn Toyota Touring, en það er mikinn kostur að hafa fjórhjóladrif því þá kemst ég hvenær sem er á fjöll á skíði," segir Magdalena Margrét Kjartansdóttir myndlistarkona en segist svo sem ekkert vera nein sérstök bílakona þótt hún hafi alltaf haft gaman að fallegum bílum. "Fyrsti bíllinn sem ég keyrði var eldgömul drossía með leðri og maður þurfti að tvíkúpla til að skipta um gír," segir Magdalena en bætir við að hún hafi nú ekki lengi átt bíl framanaf enda hafi tíðin verið önnur. "Ég öðlaðist miklar vinsældir í partíum í gamla daga þegar fólk vissi að ég væri ekki að drekka en þegar það áttaði sig á að ég væri ekki á bíl þá dofnuðu vinsældirnar," segir Magdalena hlæjandi en minnist fyrsta bílsins sem hún átti sem var blágræn Volkswagen bjalla. "Nú í dag eru allir bílar gráir, það vantar alveg litadýrðina í þetta. Ég á hvítan bíl núna og átti gráan síðast," segir Magdalena kíminn, en þessa dagana er hún með sýningu í Hallgrímskirkju á verkum sínum. "Ég er reyndar nýkomin frá Finnlandi þar sem ég tók þátt í sýningu ásamt þremur öðrum íslenskum myndlistarkonum, og það var fjallað mjög vel um okkur í fjölmiðlum þar og með mikilli virðingu. Finnar eru mjög færir að fjalla um listina og það er kannski orðin klisja en þeir komu auga á að það væri eitthvað sérstakt við íslenska list," segir Magdalena, en sýningin hennar í Finnlandi er enn í fullum gangi. "Ég hef verið starfandi listamaður í ein 20 ár og maður verður að halda sér við efnið."
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira