Loksins, loksins Willys 19. nóvember 2004 00:01 . "
Draumurinn kviknaði fyrst í kringum 1965, þegar ég var í námi og hafði ekki efni á kaupa mér Willys-jeppa. Vinir mínir tveir áttu Willys og ég var pínu spældur að eiga ekki einn líka, en ákvað að einhvern tíma seinna myndi ég eignast svona bíl. Nú hefur draumurinn ræst og bíllinn stendur fullkomlega undir væntingum. Útlitið er nánast óbreytt, sem er ótvíræður kostur, en auðvitað eru nýjar tæknilegar útfærslur bara bónus. Ég er alsæll með bílinn og nú er ég sá eini í vinahópnum sem á svona bíl." Númerið á bílnum er rómverska talan sjö, en Þorkel dreymdi að hann ætti að fá sér það númer á bílinn. "Ég vaknaði einn morguninn og hafði þá dreymt mjög ákveðið að ég yrði að fá mér rómversku töluna sjö á bílinn. Mér fannst ótrúlegt að það fengist í gegn en auðvitað gat ég fengið V og tvö I á númerið. Sjö er happatalan mín, ég er fæddur sjöunda og margir gleðiaatburðir í mínu lífi tengjast tölunni sjö, þannig að þetta er allt eins og það á að vera." Þorkell segist ekki vera jeppadellukarl þó hann sé á Willys, en finnst gaman að láta reyna á hestöflin. "Það væri lítið varið í að vera á jeppa annars," segir hann hlæjandi. "Þetta er bara Willys-fílingurinn eins og hann gerist bestur."
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira