Sport

Keflavík sló Snæfell út

Keflavík sló Snæfell út úr keppni í 32ja liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í Reykjanesbæ í gær. Keflavík lagði Snæfell með sextán stiga mun, 102-86. Magnús Gunnarsson skoraði 27 stig fyrir Keflavík en Desmond Pepoles 27 stig fyrir Snæfell sem lék án Ingvaldar Magna Hafsteinssonar þar sem Snæfell er yfir launaþaki og þarf að hvíla einn leikmann sem þiggur laun í hverjum leik. ÍS og Njarðvík mætast í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar klukkan 19.30 í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×