Alveg geðveikur 10. desember 2004 00:01 "
Draumabíllinn minn er Porsche 911," svarar Rúnar Gíslason á augabragði aðspurður um draumabílinn. "Reyndar hef ég alltaf verið hrifinn af jeppum en mig langar bara í einn léttan og lipran núna," segir Rúnar, sem viðurkennir þó ekki að hann sé mikill bíladellukarl en mikið sé um þá í ættinni hans. "Já, jepparnir voru málið hérna áður fyrr, þá lét ég mig dreyma um Patrol á risadekkjum og allan pakkann, en tímarnir breytast," segir Rúnar og hlær. Að vissu leyti sér hann Porsche-sportbílinn fyrir sér sem stöðutákn en hann telur að það sé nú ekki það sem heillar hann við bílinn. "Ég vann hjá manni fyrir mörgum árum sem átti einn svona Porsche og mér fannst hann bara geðveikur og hefur alltaf langað í einn síðan. Þetta er náttúrlega ekkert venjulegur bíll," segir Rúnar og bætir við: "Hann er bara allt öðruvísi en allir aðrir sportbílar, það er bara eitthvað við hann."
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira