Ætlum að toppa eigin árangur 19. janúar 2005 00:01
Keflvíkingar taka á móti Benetton Fribourg Olympic frá Sviss í bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik í kvöld. Fyrri leiknum, sem fram fór í Sviss, lyktaði með sigri heimamanna, 103-95, og þarf Keflavík að vinna með 9 stigum eða meira til að tryggja sér áframhaldandi þátttöku í keppninni. Keflvíkingar geta reyndar leyft sér að vinna með 8 stiga mun svo framarlega sem gestirnir skori minna en 95 stig. Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari Keflvíkinga, sá um að stýra liðinu í síðasta leik gegn Snæfelli þar sem Sigurður Ingimundarson lá veikur heima. "Siggi kallinn er allur að koma til. Hann fékk þessa landlægu flensu en verður risinn úr rekkju í kvöld," sagði Falur. Að sögn Fals leika liðin tvö mjög áþekkan körfubolta. "Fribourg býr yfir góðum skyttum fyrir utan og er með mjög góðan Bandaríkjamann. Leikmenn liðsins eru aðeins stærri í flestum stöðum en þetta eru mjög svipuð lið." Tveir leikmenn Keflavíkur, Magnús Þór Gunnarsson og Anthony Glover, skoruðu aðeins 5 stig samanlegt gegn Snæfelli í síðasta leik en sá síðarnefndi fór hamförum gegn Fribourg í fyrri leiknum og skoraði þá 44 stig og reif niður 12 fráköst. Falur sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af köflóttu gengi einstakra leikmanna. "Menn hljóta að gíra sig upp fyrir þennan mikilvæga leik á morgun því ef við vinnum þá toppum við eigin árangur frá síðustu keppni." Falur fullyrti að Keflavík hefði ekki leikið nógu skynsamlega í fyrri leiknum gegn Fribourg. "Við vorum fljótir á okkur í sókninni og spiluðum vörnina ekki nógu vel. Við erum búnir að spila einn leik síðan, gegn Snæfelli á mánudaginn, þar sem vörnin var mjög góð en sóknin lakari. Ef við tökum seinni hálfleikinn úr þeim leik í kvöld, þá getum við ekki annað en verið bjartsýnir, " sagði Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur.
Körfubolti Mest lesið Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Leik lokið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Enski boltinn Í beinni: Valur - Breiðablik | Bikarinn fer á loft Íslenski boltinn Meistararnir lentu undir en unnu samt Enski boltinn Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Enski boltinn Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Körfubolti Fleiri fréttir Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Leik lokið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Í beinni: Everton - Newcastle | Ísinn brotinn hjá Dyche og félögum? Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Leik lokið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Risasigrar hjá Val og Haukum Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust Í beinni: Valur - Breiðablik | Bikarinn fer á loft Sandra María valin best Helena tekin inn í heiðurshöll TCU „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund Telur að Thomas sé betri en Basile „Finnst yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum“ Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn Dagskráin í dag: Hvaða lið verður Íslandsmeistari kvenna í fótbolta? Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera Selfoss komið á blað Sjá meira