Jón Arnór tilnefndur í stjörnulið 9. febrúar 2005 00:01
Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá rússneska úrvalsdeildarliðinu Dynamo St. Petersburg, hefur verið tilnefndur í bakvarðarstöðu Evrópuúrvalsins sem mætir úrvali erlendra leikmanna í Stjörnuleik sem fram fer í Limassol á Kýpur þann 14. apríl næstkomandi. 10 leikmenn verða valdir af þjálfurum liðanna en einnig er boðið upp á netkosningu. Hægt er að taka þátt í valinu á heimasíðu evrópska körfuknattleikssambandsins, fibaeurope.com, og leggja Jóni lið. Tveir leikmenn verða valdir að auki sem verða liðinu til fulltingis. Þetta er mikill heiður fyrir Jón sem körfuknattleiksmann og sýnir að hann er mikils metinn í körfuboltaheiminum. Nú þegar hafa fyrrum samherjar Jóns hjá KR tekið sig saman og standa fyrir atkvæðasöfnun í þeirri von að Jón komist til Kýpur. Jón hefur staðið sig vel með Dynamo St. Petersburg það sem af er og er liðið taplaust í Evrópukeppninni, hefur unnið alla 14 leiki sína. Dynamo lék síðast við gríska liðið Iraklis á útivelli í fyrrakvöld. Gríska liðið byrjaði leikinn betur og leiddi 24-19 eftir fyrsta fjórðung. Dynamo-liðið sótti í sig veðrið og munaði aðeins einu stigi í hálfleik, 51-50. Dynamo þétti vörnina í seinni hálfleik og hélt heimamönnum í 31 stigi. Jón skoraði 9 stig, tók 2 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal einum bolta í leiknum. Hægt er að nálgast slóðina netkosningu Stjörnuleiksins á kki.is
Körfubolti Mest lesið Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Leik lokið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Enski boltinn Í beinni: Valur - Breiðablik | Bikarinn fer á loft Íslenski boltinn Meistararnir lentu undir en unnu samt Enski boltinn Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Enski boltinn Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Körfubolti Fleiri fréttir Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Leik lokið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Í beinni: Everton - Newcastle | Ísinn brotinn hjá Dyche og félögum? Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Leik lokið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Risasigrar hjá Val og Haukum Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust Í beinni: Valur - Breiðablik | Bikarinn fer á loft Sandra María valin best Helena tekin inn í heiðurshöll TCU „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund Telur að Thomas sé betri en Basile „Finnst yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum“ Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn Dagskráin í dag: Hvaða lið verður Íslandsmeistari kvenna í fótbolta? Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera Selfoss komið á blað Sjá meira