Fá undanþágu til uppskiptingar 14. mars 2005 00:01
Samkeppnisstofnun hefur veitt Olíufélaginu, Olíuverzlun Íslands og Skeljungi undanþágu frá samkeppnislögum til þess að skipta upp bensínstöðvum sem félögin ráku saman úti á landi. Um er að ræða bensínstöðvar í Ólafsvík, Stykkishólmi, Þorlákshöfn og á Hvammstanga, Fáskrúðsfirði, Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði. Í ákvörðun samkeppnisráðs í tengslum við ólögmætt samráð félaganna var þeim fyrirmælum beint til félaganna að hætta samrekstri á bensínstöðvum og samvinnu því tengdri. Olíufélögin sendu í kjölfarið Samkeppnisstofnun bréf í lok nóvember á síðasta ári þar sem þau tilkynntu að þau hefðu samið um að skipta á milli sín þeim bensínstöðvum sem væru í sameiginlegri eigu tveggja eða þriggja olíufélaga. Fóru þau fram á að veitt yrði undanþága á bannákvæðum 10. greinar samkeppnislaga ef úrskurðað yrði að uppskiptingin bryti í bága við samkeppnislög. Samkeppnisstofnun úrskurðaði að samkomulagið um skiptingu stöðvanna stríddi gegn samkeppnislögum en veitti félögunum undanþágu frá ákvæðum laganna þar sem hún vænti þess að samkeppni eflist á þeim markaðssvæðum bensínstöðva sem samreknar eru eftir skiptinguna.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira