Innlent

Vildi meina að út­brotin væru eftir varafyllingar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sóknaraðili segist hafa fengið útbrot vegna varafyllinganna.
Sóknaraðili segist hafa fengið útbrot vegna varafyllinganna. Vísir

Kröfum einstaklings, sem segist hafa fengið útbrot eftir varafyllingar, upp á 250 þúsund krónur var hafnað af kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Nefndin féllst hins vegar ekki á rök þess sem sprautaði sem vildi meina að um væri að ræða heilbrigðisþjónustu.

Sóknaraðili gekkst undir varafyllingar þann 27. desember 2025 og sagði í kæru sinni að daginn eftir hefðu komið fram útbrot í andliti hans. Tveimur dögum síðar leitaði hann til læknis en útbrotin höfðu orðið væg eftir að sóknaraðili tók ofnæmislyf. Læknirinn ráðlagði sóknaraðilanum að halda áfram að taka lyfin.

Sóknaraðilinn telur því að útbrotin hafi stafað af varafyllingunum en hann hafði fengið þær upplýsingar frá varnaraðilanum að varafyllingarnar væru öruggar og ekki væri hætta á ofnæmisviðbrögðum. Varnaraðili hafi einnig gert lítið úr einkennunum og hvatt sóknaraðila til að leita ekki til læknis.

Í kærunni var farið fram á endurgreiðslu upp á 39.000 krónur, 5.900 krónur vegna læknis- og lyfjakostnaðar og 200.000 krónur í miskabætur.

Varafyllingar væru heilbrigðisþjónusta

Í úrskurði kærunefndarinnar er mál varnaraðilans einnig reifað en hann segist hafa afhent sóknaraðila bækling með upplýsingum um eftirfylgni. Útbrotin hafi þá verið sjáanleg í andliti sóknaraðilans þegar hann mætti í meðferðina.

Varnaraðilinn fór þá fram á að málið yrði fellt niður annars vegar vegna þess að varafyllingarnar féllu undir heilbrigðisþjónustu og hins vegar vegna þess að hann hafi ekki fengið nægilegt tækifæri til að leysa úr ágreiningi áður en kvörtunin var lögð fyrir nefndina. Kærunefndin féllst ekki á rökin.

Hins vegar mat hún svo að ekki væri hægt að fullyrða að orsakasamhengi væri á milli varafyllinganna og útbrotanna. Ljósmyndirnar sem lagðar voru fram með kærunni vörpuðu ekki nægilegu ljósi á orsök útbrotanna og lágu engin læknisfræðileg gögn fyrir sem staðfestu að um ofnæmisviðbrögð við fylliefninu hefði verið að ræða.

„Þá verður hvorki ráðið af fyrirliggjandi gögnum að meðferðin hafi verið framkvæmd með ófullnægjandi hætti né að varnaraðili hafi sýnt af sér saknæma háttsemi við framkvæmd hennar,“ segir í úrskurði nefndarinnar.

„Sóknaraðili byggir jafnframt á því að upplýsingagjöf varnaraðila fyrir meðferðina hafi verið ófullnægjandi. Að mati nefndarinnar hefur ekki verið sýnt fram á að varnaraðili hafi vanrækt upplýsingaskyldu sína gagnvart sóknaraðila eða að ætlaðir annmarkar á upplýsingagjöfinni hafi valdið sóknaraðila tjóni.“

Kröfum sóknaraðila var því hafnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×