Hummer eignast lítinn bróður 18. mars 2005 00:01
Þrátt fyrir að Hummer H1 og síðar H2 séu í augum margra holdgervingar frelsisins að hætti Ameríku hefur sala á þeim minnkað jafnt og þétt á undanförnum misserum. Helst er því um að kenna að bílarnir eru þungir, eldsneytisfrekir og stórir; allt sem amerískir bílar áttu einu sinni að vera. Til að mæta nýjum kröfum bílakaupenda mun Hummer bjóða upp á nýjan bíl, H3, á næsta ári. H3 er lítill og léttur í samanburði við stóru bræður sína. Hann er byggður á sömu grind og Chevy Colorado og vegur aðeins rúmlega 2,1 tonn. Þrátt fyrir það er hér algjör þjarkur á ferðinni því að með sparneytnum 220 hestafla 3,5 lítra 5 strokka mótor getur hann dregið rúm 2 tonn, eða næstum sína eigin þyngd. Ekki er ólíklegt að H3 muni í framtíðinni verða boðinn með stærri vélar. Þangað til geta Hummer-aðdáendur glaðst yfir þessum nýja fjölskyldumeðlim, sem er líka ódýrari en eldri tegundirnar og mun kosta rúmar 2 milljónir króna á Ameríkumarkaði.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira