Veðurguðirnir ákveða daginn 11. apríl 2005 00:01 "
Ef þetta hret hefði ekki komið væri töluvert af fólki búið að skipta um dekk, en af því að þetta dróst aðeins verður smá hasar í nokkar vikur. Um miðjan maí eru flestir komnir á þau dekk sem þeir ætla að keyra á í sumar," segir Trausti Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Dekkjalagersins. Hann segir allflesta vera á nagaldekkjum enda geti ekkert leyst naglana af hólmi. "Hversu súrt sem það er fyrir umhverfið og göturnar er ekkert sem er jafnöruggt og naglar þegar keyrt er á ísingu," segir Trausti Þór. Flesta segir hann setja undir bílinn ný sumardekk eða dekk sem þeir eiga fyrir og ef nagladekkin eru orðin slöpp og ekki útlit fyrir að þau dugi næsta vetur er hægt að tína úr þeim naglana og keyra á þeim. Hvað varðar endingu á dekkjum segir hann að það fari alfarið eftir tegund og gæðum dekkjana. "Til eru margar gerðir af dekkjum og gæðaflokkarnir margir, en fólk ætti að passa sig á að velja ekki dekk eingöngu eftir verði því það er ekki aðeins verið að kaupa dekk heldur líka að kaupa kílómetra. Auk þess verða þau að vera örugg og ekki mikill hávaði í þeim. Stundum borgar sig ekki að spara einhverja fimmhundruðkalla því þegar upp er staðið er það kannski enginn sparnaður," segir Trausti Þór.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira