Öryggisgæsla í Evrópu aukin 8. júlí 2005 00:01
Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. Öryggisgæsla við lestarstöðvar og önnur samgöngumannvirki hefur verið hert um alla Evrópu og til að mynda eru nú lögregluþjónar á gangi um alla Parísarborg í Frakklandi. í Bandaríkjunum og Kanada hefur líka verið gefin út viðvörun um hugsanlegar árásir og þar er mikill viðbúnaður. Enn liggur ekki fyrir hvort um sjálfsmorðsárásir var að ræða, en sérfræðingar rannsaka nú yfirlýsingu hóps tengdum al-Qaeda, sem í gær lýsti yfir ábyrgð á árásunum. Allir virðast þó sammála um að árásin sé væntanlega gerð af al-Qaeda því öll ummerki mjög lík og þegar gerðar voru árásir á Madríd í fyrra. Jafnvel er talið líklegt að árásirnar á strætisvagnana hafi verið sjálfsmorðsárásir, en ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum. Fyrstu rannsóknir benda til þess að í öllum tilvikum kunni að hafa verið notaðar litlar sprengjur sem alla jafna eru notaðar til hernaðar, en ekki stórar heimatilbúnar sprengjur, eins og talið var í gær.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira