Erlent

Snerti fjölskyldu mína

Zidane í sjónvarpinu
Bað aðdáendur sína og börn heimsins að afsaka uppákomuna á HM.
Zidane í sjónvarpinu Bað aðdáendur sína og börn heimsins að afsaka uppákomuna á HM. MYND/AFP

Zinedine Zidane mætti í viðtal hjá Canal Plus sjónvarpsstöðinni í gær og bað aðdáendur sína fyrirgefningar á ruddalegri framkomu sinni í lokaleik heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Hann sagðist þó ekki sjá eftir henni, til þess hefðu ummæli Materazzis verið of meiðandi.

Zidane vill enn ekki gefa uppi hvað það nákvæmlega var sem Ítalinn Materazzi sagði við hann, sem fékk hann til að bregðast svona við, en sagði þó að það hefði snert fjölskyldu sína.

Materazzi er álíka þögull og vill frekar tala um hvað hann ekki sagði við Zidane en hitt. Hann segist til að mynda hvorki hafa kallað Zidane hryðjuverkamann né minnst á móður hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×