Erlent

Saddam lagður á sjúkrahús

Eftir sautján daga langt hungurverkfall þótti ástand Saddams Hussein svo slæmt að hann var færður á spítala í gær. Hann neitar enn að innbyrða heilar máltíðir en fær nú næringu í gegnum slöngu.

Saddam og þrír aðrir sakborningar hafa verið í hungurverkfalli síðan 7. júlí til að mótmæla verklagi réttarins og bágum öryggisráðstöfunum fyrir verjendur sína, en þrír þeirra hafa verið myrtir frá því réttarhöld hófust.

Verjendur hafa biðlað til bandarískra yfirvalda að tryggja öryggi sitt, en munu hafa hafnað sömu öryggisráðstöfunum og eru í boði fyrir dómara og saksóknara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×