Erlent

Árásir Ísraela fordæmdar

jan egeland
jan egeland

Aðgerðir Ísraelsmanna eru ekki í samræmi við þann skaða sem þeir hafa orðið fyrir og skemmdir á mannvirkjum í Beirút eru hryllilegar, er haft eftir Jan Egeland, yfirmanni neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, en hann telur að um mannréttindabrot sé að ræða.

Egeland kom til Beirút í gær skömmu eftir eina loftárás Ísraelsmanna og hafði orð á því að eyðilegging borgarinnar væri mun víðtækari en hann hefði grunað. "Þetta er hryllilegt," sagði Egeland. "Hér sé ég fjölda heimilislausra barna sem þjást. Í þessu stríði greiða almennir borgarar óhóflegt gjald. Ég hefði ekki trúað því að húsaröð á húsaröð ofan hefði verið jöfnuð við jörðu." Hann bætti við að "óhófleg viðbrögð Ísraelsmanna" væru brot á alþjóðlegum mannréttindasáttmálum.

Í Líbanon hafa nú um 600.000 almennir borgarar flúið heimili sín, samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðis­stofnunarinnar. Um 380 hafa látið lífið í stófelldri tólf daga langri sprengjuárás Ísraelshers, þar af ellefu skæruliðar Hizbollah. Til samanburðar má nefna að alls hafa 36 ísraelskir borgarar látist og voru sautján þeirra hermenn. Ísraelskar herþotur drápu þrjá flóttamenn þegar þær sprengdu sendiferðabíl í loft upp í gær. Þrettán aðrir farþegar særðust en komust lífs af. Sendiferðabíllinn var aftastur í langri bílalest flóttamanna sem var á leið gegnum fjalllendi til Tyreborgar. Ísraelsher hafði skipað þeim og íbúum tólf annarra þorpa að flýja heimili sín daginn áður.

Ísraelski herinn ætlar að leyfa skipum með neyðarvistir að koma að landi í Beirút og hefur heitið því að gera ekki árásir á veg milli Beirút og Trípólí og auðvelda þannig för flóttamanna norður á bóginn. Herinn hefur ekki skilgreint samsvarandi örugga flóttaleið í Suður-Líbanon, þar sem neyðin er mest og vegirnir háskalegastir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×