Erlent

Þrír hermenn handteknir

Handtekinn Einn hinna handteknu í fylgd lögregluþjóns.
Handtekinn Einn hinna handteknu í fylgd lögregluþjóns. MYND/AP

Srinagar, AP Þrír indverskir hermenn og tveir lögreglumenn hafa verið handteknir í Kasmírhéraði nyrst á Indlandi. Þeir eru grunaðir um tengsl við herská samtök sem talin eru bera ábyrgð á fjölda sprengjuárása á Indlandi, þar á meðal sprengingunum í lestakerfinu í Mumbai fyrr í þessum mánuði.

Á annan tug herskárra hópa múslima berjast gegn yfirráðum Indlands í Kasmír. Reynist grunurinn um tengsl þessara manna við slíkan hóp réttur er það í fyrsta sinn svo vitað sé sem liðsmönnum þeirra tekst að komast inn í raðir indverska hersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×