Erlent

Karlmaður handtekinn

Lík af þungaðri konu fannst í vikunni á floti við Ekerö, skammt fyrir utan Stokkhólm. Að sögn lögreglu var konan myrt fyrir mörgum mánuðum og í fyrstu var ekkert annað vitað um hana en að hún hefði líklega verið af erlendu bergi brotin og komin rúma sjö mánuði á leið.

Upplýsingar frá almenningi urðu til þess að nú hafa kennsl verið borin á líkið og á fimmtudag handtók sænska lögreglan karlmann á fertugsaldri í suðurhluta Stokkhólms.

Hann var yfirheyrður í gær en lögregla varðist allra fregna af málinu, að því er fram kom á fréttavef Dagens Nyheter í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×