Erlent

Hundakjöt fyrir húðina

Hundaáti mótmælt Aðgerðasinnar hafa löngum kvartað yfir illri meðferð á hundum og hafa krafist banns á hundaáti.
Hundaáti mótmælt Aðgerðasinnar hafa löngum kvartað yfir illri meðferð á hundum og hafa krafist banns á hundaáti.

Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum.

Norður-Kórea hefur sérhæft sig í ljúffengum hundakjötsréttum, en þar í landi er hundakjöt kallað „hið sæta kjöt“. 35 af hundraði suður-kóreskra hundaeigenda gæða sér einnig reglulega á hundasúpu. Hundakjöt er einnig vinsælt í Kína, Víetnam og Laos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×