Erlent

Tattúveruðu enni morðingja

Fangar í fangelsi í Indiana í Bandaríkjunum munu hafa sett húðflúr á enni barnsmorðingja nokkurs sem situr í fangelsi með þeim. Að sögn fangelsisyfirvalda, stendur nú hefnd Katiear á enni mannsins.

Fanginn var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa misnotað kynferðislega og banað tíu ára gamalli telpu, Katie að nafni, í fyrra.

Mynd af húðflúruðu enni mannsins birtist í síðustu viku á bandarískri bloggsíðu, þar sem fjallað er um glæpi gegn konum og börnum.

Tveir fangaverðir hafa verið reknir, grunaðir um að hafa fjölfaldað í óleyfi ljósmyndina sem tekin var í rannsóknarskyni, og sett á vefsíðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×