Erlent

Systurnar áður orðið fyrir árás

 Tvær af systrunum þremur, sem myrtar voru í Ósló á sunnudagskvöld, hafa áður orðið fyrir fólskulegri árás frá manni úr fjölskyldu þeirra. Sá maður er þó ekki sá sami og bróðir þeirra, sem grunaður er um að hafa myrt þær.

Norskir fjölmiðlar héldu því fram í gær að harðar innbyrðis deilur hefðu sett svip sinn á fjölskylduna árum saman.Nágrannar fjölskyldunnar segjast þó furðu lostnir, því þeir hafi ekki kynnst öðru en að þessi fjölskylda væri afar vingjarnleg. Fjölskyldan er ættuð frá Pakistan, þar sem fjölskyldufaðirinn býr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×