Erlent

Telpurnar bornar til grafar

Líkfylgdin  Fjölmenni var við útför Amish-stúlknanna í gær.
Líkfylgdin Fjölmenni var við útför Amish-stúlknanna í gær. MYND/AP

Fjórar af Amish-telpunum fimm sem myrtar voru fyrr í vikunni í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru jarðsettar í gær. Útför þeirrar fimmtu verður haldin í dag.

Tvær telpnanna sem létust voru sjö ára, en hinar átta, tólf og þrettán ára. Tvær þeirra voru systur. Fimm telpur liggja enn á sjúkrahúsi eftir árás byssumannsins inn í skóla trúarsafnaðarins, misalvarlega slasaðar.

Talsmaður Amish-fólksins hefur beðið umheiminn um að fyrirgefa byssumanninum, sem ekki var af þeirra trú, og um að biðja fyrir eftirlifandi eiginkonu hans og þremur ungum börnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×