Fræg blaðakona myrt í Rússlandi 8. október 2006 07:15 Anna politkovskaja var þekkt fyrir harða gagnrýni sína á aðgerðir stjórnar Pútíns Rússlandsforseta.
Rússnesk blaðakona, sem var þekkt fyrir harða gagnrýni sína á stjórn Pútíns Rússlandsforseta, fannst myrt í gær. Anna Politkovskaja, 48 ára og tveggja barna móðir, fannst skotin til bana í lyftu fjölbýlishúss í Moskvu með byssu og fjögur skothylki við hlið sér. Lögregla telur að morðið tengist vinnu hennar. Politkovskaja var þekkt fyrir fréttir sínar um morð, pyntingar og barsmíðar rússneskra hermanna á almennum borgurum. Hún skrifaði einnig gagnrýna bók um aðgerðir stjórnar Pútíns í Tsjetsjeníu og misþyrmingar hermanna á borgurum sem þar fóru fram. Árið 2004 fékk Politkovskaja slæma matareitrun eftir að hafa drukkið te í flugvél á leið í barnaskóla í suðurhluta Rússlands. Samstarfsmenn hennar grunaði að eitrað hefði verið fyrir henni. Henni bárust einnig fjölmargar morðhótanir vegna fréttaskrifa sinna. Rússland er orðið eitt hættulegasta land í heimi fyrir blaðamenn. Tuttugu og þrír blaðamenn voru myrtir í landinu á árunum 1996 til 2005. Að minnsta kosti í tólf tilvikum bendir til að um leigumorð hafi verið að ræða síðan Pútín komst til valda.
Erlent Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira