Erlent

Sprungur komu í framrúðu

Sprungur komu í rúðu í glugga í stjórnklefa Boeing 737, vélar í eigu SAS, sem var á leið frá Ósló til Íslands í gærkvöldi, að sögn norska dagblaðsins VG. Flugmaðurinn ákvað að snúa við og fljúga til flugstöðvarinnar í Stafangri.

Sprungurnar komu í ljós eftir að vélin var farin í loftið og þótti ekki ráðlegt að halda fluginu áfram. Meðal rúmlega hundrað farþega voru yfir fimmtíu nemendur og kennarar frá skóla í Stafangri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×