Erlent

Búa sig undir aðra sprengju

Hwang Jang Yop
Var einn af æðstu leiðtogum Norður-Kóreu þegar hann flúði land árið 1997.
Hwang Jang Yop Var einn af æðstu leiðtogum Norður-Kóreu þegar hann flúði land árið 1997. MYND/AP

Fyrrverandi ráðamaður í Norður-Kóreu telur engar líkur á því að kjarnorkuvopnaáætlun landsins verði stöðvuð fyrr en leiðtoginn Kim Young Il missir völdin. Hann sagðist þó telja litlar líkur á því í bráðina.

Í gær bárust fréttir af því að Norður-Kóreumenn væru hugsanlega að undirbúa aðra tilraunasprengingu kjarnorkuvopns, en Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að litið verði á aðra sprengingu sem alvarlega ögrun. Hún hélt í gær til Japans og ætlar einnig að fara til Kína og Suður-Kóreu til þess að ræða um kjarnorkudeiluna við Norður-Kóreu.

Norður-Kóreumenn ítrekuðu hins vegar í gær að þeir líti á allan þrýsting sem stríðsyfirlýsingu og muni bregðast við með harkalegum hætti.

Hwang Jang Yop, sem flúði frá Norður-Kóreu árið 1997, sagðist í viðtali við AP fréttastofuna efast um að refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna veiki stöðu leiðtogans, sem hefur alla þræði í hendi sér.

„Ég efast um að völd hans veikist að ráði,“ sagði Hwang, og bætti því við að Suður-Kórea haldi áfram að veita Norður-Kóreu margvíslega aðstoð, auk þess sem Kína, Rússland og fleiri lönd séu andvíg því að beita Norður-Kóreu miklum þrýstingi.

Hann sagðist ekki heldur telja það skila nokkrum árangri að semja við Norður-Kóreu. Þess í stað ættu Bandaríkin, Rússland, Kína, Japan og Suður-Kórea að standa saman að því að einangra landið, sem hann kallar „alþjóðleg glæpasamtök og óvin lýðræðis“.

Hwang lagði áherslu á að einungis Kínverjar geti komið því til leiðar að Kim Young Il missi völdin.

„Engir kínverskir embættismenn eru hrifnir af leiðtoga Norður-Kóreu, en þeir halda honum við völd,“ segir Hwang.

Hwang, sem sjaldan gefur viðtöl, kom heiminum heldur betur á óvart árið 1997 þegar hann bað, ásamt aðstoðarmanni sínum, um hæli í sendiráði Suður-Kóreu í Beijing þegar þeir voru þar í heimsókn. Hann var þá einn af æðstu leiðtogum Norður-Kóreu, aðalritari Verkamannaflokksins sem réði þar lögum og lofum.

Hwang hafði verið nákominn Kim Il Sung, stofnanda Norður-Kóreu, og var nánast uppeldisfaðir sonar hans og núverandi leiðtoga landsins, Kim Young Il.

Hann er einnig almennt talinn helsti hugmyndafræðingurinn á bak við Juche-stefnuna, sem stjórnvöld í Norður-Kóreu fylgja, og gengur út á það að landið sé sjálfu sér nægt um allar þarfir.

Hwang nýtur lögregluverndar allan sólahringinn af ótta við að Norður-Kóreumenn reyni að ráða hann af dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×