Menning

Loftskip frá Óskari

Níunda ljóðabókin Óskar Árni Óskarsson skáld býður lesendum í huglægt ferðalag í strætó.
Níunda ljóðabókin Óskar Árni Óskarsson skáld býður lesendum í huglægt ferðalag í strætó.

Óskar Árni Óskarsson rithöfundur, þýðandi og bókavörður sendir frá sér sína níundu ljóðabók, Loftskip, um þessar mundir. Höfundurinn hefur einkum fengist við ljóðagerð og ljóðaþýðingar og meðal annars sent frá sér þrjár bækur með japönskum hækuþýðingum. Hann ritstýrði og gaf út bókmenntatímaritið Ský sem kom út á árunum 1990-1994. Ljóð eftir Óskar Árna hafa birst í fjölmörgum tímaritum og sýnisbókum, íslenskum sem erlendum.

Í ljóðum Loftskips er lesandanum boðið í ferð með strætisvagni sem enga endastöð virðist hafa þar sem farþegarnir rýna í leiðarkortin og úti sér ekki í nóttina fyrir myrkri. Skáldið fer  með lesandann í ferðalag jafnt um kunnuglegar sem fáfarnari slóðir og reynist þar margt annað en sýnist.

Bókaforlagið Bjartur gefur bókina út en fyrr á árinu gaf Óskar Árni út bókina Ráð við hversdagslegum uppákomum hjá forlaginu Smekkleysu.

Óskar Árni hlaut fyrr á þessu ári Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið „Í bláu myrkri“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.