Menning

Stella í or­lofi á stóra sviðið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stella Löve og félagar í Stellu í orlofi.
Stella Löve og félagar í Stellu í orlofi.

Ein ástsælasta kvikmynd þjóðarinnar, Stella í orlofi, verður sett á svið í Borgarleikhúsinu á næsta leikári. Brynhildur Guðjónsdóttur mun leikstýra sýningunni og skrifa leikgerð hennar ásamt Halldóri Laxness, Dóra DNA.

Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarleikhús frá tíðindunum. 

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrði kvikmyndinni, Guðný Halldórsdóttir skrifaði handritið og Edda Björgvinsdóttir fór með titilhlutverkið. Í tilefni tímamótanna greinir Borgarleikhúsið frá sviðsetningu.

Stella í orlofi segir frá Stellu Löve, lífsglöðu húsmóðurinni sem tekur til sinna ráða þegar Georg, eiginmaður hennar, lendir á spítala og kemst ekki í veiðiferð sem stóð til með erlendum viðskiptavin. Stella ákveður að fara í stað Georgs og hefst þá óborganleg atburðarás sem öll er byggð á misskilningi.

„Stella í orlof er fullkomin blanda af galsa og trega, sameign okkar allra og hápunktur tímabils þegar bjór var bannaður og allir drukku sterkt, leiðtogafundur stórvelda var haldinn í Höfða, Hófí var fallegust, Jón Páll var sterkastur, Reynir Pétur labbaði í kringum landið og allir fengu köku í tvö hundruð ára afmæli Reykjavíkurborgar. Og hugsiði ykkur, við lifðum þetta af!“ segir Brynhildur um tímabilið sem verður endurskapað á stóra sviðinu

Mæðginin Dóri DNA og Guðný Halldórsdóttir, Brynhildur og Halldór Þorgeirsson, framleiðandi myndarinnar.

„Það verður sannarlega áskorun að koma hinu frábæra kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur á svið, fanga það besta úr kvikmyndinni sem heillaði þjóðina og kitlaði hláturtaugar svo um munaði,“ segir Brynhildur.

„Eitursnjöll flétta, frábærlega leikstýrt af Þórhildi Þorleifsdóttur, snilldarlega leikin af óaðfinnanlegu kasti, hver rammi myndrænt listaverk, bilaðslega flott litapalletta og tónlist Valgeirs Guðjónssonar sem fullkomnar verkið,“ bætir hún við.

„Stella í orlof er óður til móður, upphafning dugmikillar og drífandi konu, hinnar stórfenglegu Stellu Löve - sem er föst í gleðiharmleik lífsins. Hún er fjallkonan sem fattar að hún þarf bara að gera allt sjálf. Kona sem, með sína sólgulu sjálfsbjargarviðleitni, keyrir í gegnum nútímalífið sem krefst svo mikils af mönnunum: heimilið og börnin og fyllerí og framhjáhald eiginmannsins. Hún á svo sannarlega skilið að fara í frí hún Stella.“

Valgeir Guðjóns og Brynhildur Guðjóns.

Sýningin mun byggja á kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur og innihalda tónlist Valgeirs Guðjónssonar. 

Leikmyndahönnuðurinn Eva Signý Berger og búningahönnuðurinn Júlíanna Steingrímsdóttir munu skapa umgjörðina og er undirbúningur nú þegar hafinn. Þá verður Valgerður Rúnarsdóttir danshöfundur sýningarinnar. Afhjúpað verður á næstu vikum hvaða leikarar munu fara með hlutverk Stellu Löve og Salomons.


Tengdar fréttir

Hvað veistu um… Stellu í orlofi?

Kvikmyndin Stella í orlofi er íslensk gamanmynd frá árinu 1986 sem fjallar um Stellu sem heldur í sumarbústaðaferð og lendir þar í alls kyns ævintýrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.