Menning

Færeyskir meistarar

Færeysk myndlist Færeyskur dans, 1961 eftir Sámal Joensen-Mikines.
Færeysk myndlist Færeyskur dans, 1961 eftir Sámal Joensen-Mikines.

Nýlega var tilkynnt að Deutsche Bank ætti fimmtíu þúsund myndlistarverk: íslensku bankarnir eiga eitthvað færri og flest eru eftir íslenska listamenn, en um helgina var opnuð sýning í aðalsal gamla Landsbankans í Austurstræti á verkum þriggja færeyskra meistara.

Um er að ræða skiptisýningar á verkum Landsbanka Íslands og Færeyjabanka en fyrirtæki þessi fagna stórafmæli á þessu ári – Færeyjabanki aldarafmæli og Landsbankinn 120 ára afmæli. Sú hugmynd að halda sameiginlega upp á stórafmælin með þessum hætti varð til á fundum forsvarsmanna bankanna seint á síðasta ári. Á sýningunum eru verk eftir þrjá listamenn frá hvoru landi sem allir eru verðugir fulltrúar síns lands og sinnar kynslóðar en sýningarnar bera yfirskriftina „Maður, náttúra og mynd“.

Í Færeyjabanka verða sýnd verk í eigu Landsbankans eftir listamennina Eggert Pétursson, Kristján Davíðsson og Jóhannes S. Kjarval.

Í Landsbankanum í Austurstræti verða til sýnis glæsileg verk í eigu Færeyjabanka eftir færeysku listamennina Ingálv av Reyni, Sámal Joensen-Mikines og Zacharias Heinesen. Hinn fyrstnefndi er talinn meðal fremstu módernista á Norðurlöndunum en Færeyjarbanki á nokkur verka hans sem ekki hafa áður verið sýnd utan eyjanna. Mikines var einn fyrsti nútímalegi túlkandi lifnaðarhátta á sínum heimaslóðum og miðla verk hans fjölbreytileika þeirra með eftirminnilegum hætti. Heinesen er Íslendingum að góðu kunnur enda hefur hann oftsinnis ferðast hingað. Hann hefur unnið af mikill leikni, bæði í hlutlægum og óhlutlægum stíl og þykir sýna sérstakt næmi fyrir litum og hrynjandi forma.

Sýningarnar standa yfir til 30. nóvember og verða öllum opnar á afgreiðslutíma bankanna. Á völdum dögum á sýningartímanum er ráðgert að bjóða upp á leiðsögn listfræðings og verður það auglýst síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.