Erlent

Áframhaldandi einangrun

Fimm menn, sem handteknir voru í byrjun september í Óðinsvéum í Danmörku, grunaðir um að skipuleggja stórfelld hryðjuverk, hafa verið dæmdir í áframhaldandi fjögurra vikna einangrun. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken.

Alls voru níu menn handteknir, en tveim var sleppt skömmu síðar og fyrir stuttu voru tveir til viðbótar látnir lausir, en þeir liggja þó enn undir grun. Jafnframt er talið að um fleiri vitorðsmenn sé að ræða.

Við húsleit hefur lögreglan lagt hald á sprengiefni.

Talið er að mennirnir hafi ætlað sér að fremja hryðjuverkin í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×