Erlent

Hundrað metra hótelháhýsi

Tívolí vill heilsársrekstur.
Tívolí vill heilsársrekstur.

Forsvarsmenn rekstrarfélags Tívolí-skemmtigarðsins í Kaupmannahöfn kynntu á fimmtudag áform um að reisa 102 metra hátt lúxushótelháhýsi í garðinum, eftir hönnun breska stjörnuarkitektsins Normans Foster lávarðar.

Stefnt er að því að hótelturninn, sem yrði ein hæsta bygging borgarinnar, verði tilbúinn síðla árs 2010, svo fremi sem öll tilskilin leyfi fáist fljótt.

Forsvarsmenn Tívolísins segja að hótelbyggingin sé liður í viðleitni félagsins til að breyta því úr árstíðabundnum í heilsársrekstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×