Erlent

Samstarf gegn hryðjuverkum

Mótmæli í Pakistan heimsókn breska forsætisráðherrans illa og sökuðu hann um stríðsglæpi.
Mótmæli í Pakistan heimsókn breska forsætisráðherrans illa og sökuðu hann um stríðsglæpi. MYND/AP

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór til Pakistan í gær til viðræðna við Pervez Musharraf, forseta landsins, um hvernig hægt sé að stemma stigu við för hryðjuverkamanna milli landanna. Einnig bar stríðið í Afganistan á góma.

Embættismaður utanríkisráðuneytis Bretlands sagði nýlega að hundruð manna færu milli landanna ár hvert til að flytja skilaboð og safna fé til hryðjuverka. Tugur fari einnig til landamæra Pakistan og Afganistan í þjálfunarbúðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×