Menning

Lestin brunar

Hver á að lesa næst? Að mörgu er að hyggja þegar efnt er til upplestra. Til dæmis er ágætt að hafa skrýtlur á takteinunum til að létta andrúmsloftið. Mynd þessi var tekin nýlega af íbyggnum höfundum milli lestranna í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Hver á að lesa næst? Að mörgu er að hyggja þegar efnt er til upplestra. Til dæmis er ágætt að hafa skrýtlur á takteinunum til að létta andrúmsloftið. Mynd þessi var tekin nýlega af íbyggnum höfundum milli lestranna í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. MYND/Róbert

Á þessum árstíma er til siðs að rithöfundar kveðji sér hljóðs á ýmsum vettvangi og kynni verk sín enda er nú árleg vertíð hjá bókafólki. Vitað er af höfundum sem þeysast nú um fjallvegi landsins með skottin stútfull af jólabókum og bíða lesendur á landsbyggðinni án efa spenntir eftir nýjungunum. Nýlega fréttist af líflegum upplestri í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem úrval höfunda messaði bókmenntaboðskapnum yfir Vestfirðinga sem gerðu að honum góðan róm.

Nú stendur svo til að kynna Austfirðingum brot af jólaútgáfunni en hin árlega „rithöfundalest“ brunar um landsfjórðunginn á næstu dögum. Lest þessi er skipulögð af Menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði, Kaupvangi á Vopnafirði og Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri.

Þátttakendur að þessu sinni eru Einar Kárason sem lesa mun úr ferðasögunni Úti að aka, Eiríkur Guðmundsson sem kynnir skáldsögu sína Undir himninum, Halldór Guðmundsson kynnir ævisöguna Skáldalíf, Ingunn Snædal sem les úr verðlaunaljóðabókinni Guðlausir menn – hugleiðingar um jökulvatn og ást og Þórunn Valdimarsdóttir sem kynnir ævisögu sína um Matthías Jochumsson.

Höfundarnir hefja lesturinn á Skriðuklaustri í kvöld kl. 20. Síðan liggur leiðin til Vopnafjarðar á morgun, föstudag, en endastöðin verður á Seyðisfirði á laugardagskvöld. Þess má geta að á laugardaginn verður aðventusýning Skaftfells opnuð en þar sýnir myndlistarmaðurinn Haraldur Jónsson verk sem bera yfirskriftina „Framköllun“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.