Sport

Keflvíkingar leiða í hálfleik

Keflvíkingar hafa yfir 41-29 gegn grönnum sínum í Njarðvík í úrslitaleiknum um deildarmeistaratitilinn í úrvalsdeild karla í körfubolta, en leikurinn fer fram í Keflavík. Njarðvíkingar byrjuðu betur í leiknum og komust í 8-0 og leiddu 19-15 eftir fyrsta leikhluta. Síðan hafa heimamenn tekið öll völd á vellinum og hafa snúið leiknum sér í vil með mikilli baráttu.

AJ Moye hefur farið á kostum í liði Keflavíkur og er kominn með 17 stig, þar af 13 í öðrum leikhluta og Vlad Boeru er kominn með 7 stig. Brenton Birmingham er kominn með 12 stig í liði Njarðvíkinga, Halldór Karlsson hefur skorað 7 en Jeb Ivey er aðeins með 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×