Guns`n roses hvað? 30. júní 2006 09:51 MYND/ Adam Scott
Jæja já, biðst afsökunar á að hafa lofað ykkur myndum í gær og ekki staðið við það. Ber fyrir mig tæknilegum örðugleikum Ég set hinsvegar inn nokkar núna. Ég er svona aðeins að venjast útilegu lífinu, veit ekki hvort ég veð með tjaldið í Mývatnssveit þegar að ég kem heim samt. Gærdaginn notaði ég til að skoða Hróarskeldu sem er afar fallegur bær, reyndar sá elsti hér í Danmörku. Fallegur miðbær, veitingastaðir og verslanir. Bærinn er ansi litaður af festivalinu, hver einasti pöbb og veitingastaður fullur af gestum og H&M troðfullt af íslendingum. Maður yrði ekki í vandræðum með að finna íslendinga ef maður týndist, skellti sér bara í dömudeildina í H&M. Þrátt fyrir 75.000 gesti á hátíðinni eru allir voða rólegir og lítið um vesen. Annars var kalt hér í gær, eða mér var að minnsta kosti kalt, fólk labbaði samt um hér hálf nakið en ég þakkaði guði fyrir flíspeysuna mína frá 66. Eftir að hafa skoðað bæinn og gengið af mér fæturnar, var komið að því að tónleikarnir færu að hefjast. Gat ekki annað en hugsað til þeirra sem eru búnir að vera hérna síðan síðasta sunnudagsmorgun. Þvílík elja. MYND/ Adam Scott Byrjaði á að hlýða á hljómsveitina Deus sem kemur frá Berlín, greinilega ekki bara gott súkkulaði og vöfflur sem koma þaðan, því bandið var gott og tónleikarnir góðir. Minntu mig á U2 á köflum og ekki var það nú verra. Þegar þeir voru að verða búnir fundum við veitingastað við aðalsviðið skelltum okkur í grasið og fengum okkur í gogginn fyrir atriði sem velflestir biðu eftir, GUNS N´ ROSES og fjöldinn fékk líka að bíða eftir jöxlunum. Eftir klukkutíma bið kom Axl Rose á ORANGE sviðið, og ég velti því fyrir mér hvort hann hafi þurft að snúa við á leið á staðinn og ná í göngugrindina sína. Að mínu mati er bandið gersamlega úr sér gengið, þetta var eiginlega frekar neyðarlegt. Þeir mega samt eiga það, að það var allt reynt, flugeldar og eldglæringar. Ég ætla að minnsta kosti að vona að þeir hafi verið betri þegar maður hlustaði á þá í gamla daga og hefði í raun bara viljað eiga þær minningar óskertar:) en ég beið svosum engann skaða af þessu. Við stóðum eiginlega bara meira og hlógum. En það var ekki allt búið enn. Eftir smá stund af Axl Rose og félögum, var komið að Sigur Rós og á þeim bænum urðu menn ekki fyrir vonbrigðum jahérna hér, ég hef nú aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi, en þetta sló allt út. Hljómsveitin sprengdi utan af sér sviðið og aðdáendur hljómsveitarinnar sýndu allan tilfinningaskalann. Fólk féll í faðma, grét og og vangaði talaði um gæsahúð. Fullt hús stiga hjá mér og hefur það ekkert með að gera að ég er íslendingur, nei, nei, MYND/ Adam Scott Rétt áður en Sigur Rós kláraði þá tölti ég í tjaldið og ætlaði "aðeins að leggja mig" ég semsagt sofnaði útfrá "ljúfum" tónum Axl Rose. Í morgun vaknaði ég svo við 90 gráðu hita í tjaldinu, enda komin brakandi blíða og sólin farin að skína. Ætla að skella á mig sólarvörn og hendast út í stuðið.. Læt í mér heyra seinna í dag. Margt að sjá í dag t.d Bob Dylan, Scissor Sisters, Kashmir og fleiri bönd. Kveð í bili, verð samt að segja ykkur frá klósettunum hérna. Hilsen, Hadda
Hróarskelda Lífið Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira