Erlent

Íbúar í Queens orðnir langþreyttir á rafmagnsleysi

Mikið af verslunarfólki hafði verslanir sínar opnar þrátt fyrir rafmagnsleysið.
Mikið af verslunarfólki hafði verslanir sínar opnar þrátt fyrir rafmagnsleysið. Mynd/AP

Um 6.000 íbúar í Queens í New York hafa nú verið í viku án rafmagns. Eftir að rafmagnið fór af í hitabylgju sem gengið hefur yfir. Raforkufyrirtækið á svæðinu hefur unnið hörðum höndum að viðgerðum en 19.000 af 25.000 heimilum hafa nú fengið rafmagn. Íbúarnir sem enn hafa ekkert rafmagn eru orðnir þreyttir og pirraðir og hafa beðið fylkisstjóra New York ríkis að grípa inn í og sjá til þess að viðgerðir gangi hraðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×