Erlent

Saddam færður með valdi af sjúkrahúsi fyrir dóm

Mynd/AP

Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseti, segist frekar vilja falla fyrir byssukúlu en að fara í gálgann veðri hann sakfelldur og dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Saddam var færður með valdi af sjúkrahúsi í morgun og fyrir dóm. Forsetinn fyrrverandi var fluttur vannærður á sjúkrahús um síðustu helgi en hann hafði þá verið í mótmælasvelti í rúman hálfan mánuð. Réttarhöldin héldu áfram á mánudaginn að Hússein fjarstöddum. Lögfræðingar hans hafa sniðgengið réttarhöldin og hafa því dómarar skipað aðra í þeirra stað. Saddam sagði í morgun að hann vildi ekkert með þá hafa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×