Erlent

Náðust loksins eftir mikinn eltingaleik

Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Richfield í Minnesota í Bandaríkjunum eftir æsilegan eltingaleik í gærmorgun. Lögregla bað mennina um að stöðva bíl sinn við venjubundið eftirlit en þeir létu ekki segjast. Kom þá upp úr dúrnum að bíllinn var stolinn og upphófst þá mikill eltingaleikur. Ekki fór betur en svo að mennirnir óku bíl sínum í nálæga sundlaug. Svo vel vildi til að enginn var í henni á þeirri stundu. Mennirnir lögðu þá á flótta á tveimur jafn fljótum og klæddu sig úr buxum sínum á leiðinni þar sem þær voru orðnar gegnsósa af vatni og því nokkuð tafsamt að hlaupa í þeim. Síðan brutust þeir inn í næsta hús og kröfðu íbúa þar um þurr föt. Þaðan héldu þeir flóttanum áfram en voru teknir höndum skömmu síðar. Engan sakaði í hamaganginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×