Erlent

Krefja Ísraela um bætur

Fuad Siniora, forsætisráðherra Líbanons.
Fuad Siniora, forsætisráðherra Líbanons. MYND/AP

Líbanar ætla að krefja Ísraela um bætur vegna árása þeirra á landið síðustu daga. Fuad Siniora, forsætisráðherra landsins, sem nú situr fund um ástandið í Líbanon í Róm á Ítalíu, tilkynnti þetta í morgun.

Siniora segir nauðsynlegt að láta Ísraela svara til sakar. Ísraelsmenn verði krafðir um bætur vegna þeirrar eyðileggingar sem þeir hafi valdið og þeirra þjáningar sem íbúar hafi orðið fyrir af þeirra völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×