Erlent

Unglingsstúlka lést í handsprengjuárás

Unglingsstúlka lést þegar handsprengju var hent inn á heimili hennar í indverska hlutka Kasmír-héraðs í morgun. Árásin er sögð hafa beinst að bróður stúlkunnar sem að sögn Reuters-fréttastofunnar er fyrrverandi skæruliði. Fimm aðrir fjölskyldumeðlimir særðust í árásinni. Þá liggja þrettán óbreyttir borgarar sárir eftir aðra handsprengjuárás í Kasmír-héraði í morgun, nánar tiltekið í bænum Sopore. Ódæðin í morgun voru framin degi áður en forseti Indlands kemur í opinbera heimsókn til Kasmír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×