Erlent

Blair og Bush funda um stríðið í Líbanon

MYND/AP

Ísraelski herinn hélt áfram loftárásum sínum á norðurhluta Líbanons í morgun. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt til fundar við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag til að ræða átökin í Mið-Austurlöndum.

Sautján dagar eru síðan að átökin hófust sem má rekja til þess að Hizbollah skæruliðar fönguðu tvo ísraelska hermenn á landamærum Ísraels og Líbanon. Stríðið virðist langt því frá í rénun en Ísraelsher hefur kallað út um fimmtán þúsund hermenn úr varaliði sínu til að taka þátt í stríðinu.

Ísraelski herinn gerði loftárásir á þrjár byggingar í þorpi nærri bænum Nabatiyeh í suðurhluta Líbanon í morgun. Að minnsta kosti þrír létust í árásunum og níu særðust.

Opinberar tölur sýna að fjögur hundruð og tuttugu Líbanir hafa látist í stríðinu en heilbrigðisráðherra Líbanons segir að um sex hundruð Líbanir hafi látist í stríðinu og að um þriðjungur þeirra látnu sé grafinn í rústum húsa sem eyðilagst hafa í sprengingum. Erfitt reynist að ná fólkinu úr rústunum þar sem Ísraelsher heldur úti hörðum loftárásum á svæðið og lítið svigrúm er fyrir björgunarsveitarmenn að athafna sig. Að sögn fréttavefsins BBC er ástandið í mörgum þorpum skelfilegt. Fjöldi þorpsbúa er innikróaður vegna átakanna og mikill skortur er á mat og vatni.

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt í morgun til Washington til fundar við George Bush, forseta Bandaríkjanna, um ástandið í Mið-Austurlöndum. Aukin þrýstingur er á stjórnvöld í Bretlandi að fylgja ekki stefnu Bandaríkjamanna heldur kalla á tafarlaust vopnahlé í Líbanon.

Bandaríkjamenn hafa ekki sagt tímabært að gera kröfu um vopnahlé þar sem ómögulegt sé að framfylgja því eins og staðan er nú. Evrópusambandið sagði í gær Ísraela ekki hafa heimild fyrir árásunum og þeir yrðu að hætta þeim tafarlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×