Innlent

Vilja skapa frið

Mynd/AFP

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í næstu viku um aðgerðaáætlun til að stöðva átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Bush Bandaríkjaforseti segir ráðið muni leggja stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna til grunns að aðgerðunum og eggja allar þjóðir til að taka þátt í að skapa frið.

Bush Bandaríkjaforseti og Blair, forsætisráðherra Bretlands voru sammála um það í Hvíta húsinu í dag að nú yrði að grípa til aðgerða til að koma á varanlegum friði á svæðinu, eins og þeir orðuðu það. Hvorugur kallaði þó eftir tafarlausu vopnahléi. Bush sagði að Öryggisráðið myndi koma saman til fundar eftir helgi þar sem sett yrði saman aðgerðaáætlun þar sem vísað yrði í sjöunda kafla stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Sjöundi kaflinn kveður á um aðgerðir vegna ófriðarhættu, friðrofa og árása en í einni grein sjöunda kafla er meðal annars kveðið á um að öryggisráðinu sé heimilt eins og þar stendur: "að grípa til hernaðaraðgerða með lofther, flota eða landher, eftir því sem nauðsyn krefur, til að varðveita eða koma á aftur heimsfriði og öryggi."

Bush og Blair töluðu um að Sameinuðu þjóðirnar myndu senda liðsstyrk til átakasvæðanna en væntanlega mun öryggisráðið skilgreina nánar hlutverk liðsins, hvort það muni hafa heimild til að grípa til vopna ef svo ber undir.

Sameinuðu þjóðirnar kölluðu í dag eftir þriggja sólarhringa vopnahléi milli Ísraela og Hisbollah, til þess að unnt yrði að koma hjálpargögnum og nauðsynjum til bágstaddra á átakasvæðunum.

Hisbollah skaut í dag upp langdrægri eldflaug, að eigin sögn, og Ísraelar hafa viðurkennt að eldflaugaárás hafi verið gerð á hafnarbæ fyrir sunnan Haifa, sem hingað til hefur verið það lengsta sem eldflaugar Hisbollah hafa drifið. Ísraelsher segir eldflaugina hafa borið um 100 kíló af sprengiefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×