Erlent

Eftirlitsmönnum á Srí Lanka fækkar um tvo þriðju

Íbúi í Trincomalee á Srí Lanka, þar sem vatn er nú af skornum skammti.
Íbúi í Trincomalee á Srí Lanka, þar sem vatn er nú af skornum skammti. MYND/AP

Að öllu óbreyttu fækkar eftirlitsmönnum norrænu friðargæslusveitarinnar á Srí Lanka um tvo þriðju í byrjun september. Danir, Finnar og Svíar hafa ákveðið að kalla sína liðsmenn heim. Íslensk stjórnvöld ákveða síðar í mánuðinum hvort fleiri Íslendingar verði sendir til friðargæslu á Srí Lanka.

Hörð átök uppreisnarmanna Tamíl tígra og stjórnarhers Srí Lanka hófust í síðustu viku þegar tígrarnir stöðvuðu vatnsstreymi til tugþúsunda íbúa suður af Trincomalee. Stjórnarherinn gerði þá árásir til að endurheimta stjórn vatnsbólanna sem ekki tókst. Átökin hafa nú færst norðureftir landi í átt að Trincomalee eins og yfirmenn norræna friðargæsluliðsins vöruðu við.

Þorfinnur Ómarsson, talsmaður eftirlitsins, segir borgarastríð ekki hafa brotist út. Ekki sé barist á öðrum svæðum og ekki búið að segja upp vopnahléssamkomulaginu.

Danir, Finnar og Svíar hafa ákveðið að kalla eftirlitsmenn sína heim fyrsta september. Tamíltígrarnir kröfðust þess að friðargæsluliðar frá Evrópusambandinu yfirgæfu landið eftir að sambandið ákvað að skilgreina tígrana sem hryðjuverkasamtök og frysta bankainnistæður þeirra.

Þorfinnur segir að þá verði eftir tuttugu eftirlitsmenn en þeir séu nú sextíu. Því verði að öllu óbreyttu að fækka verkefnum og ekki hægt að halda jafn miklu eftirliti úti.

Til greina kemur að bjóða ríki utan Norðurlandanna til að taka þátt í gæslunni en til þess þarf samþykki beggja deiluaðila sem flækir málið. Norðmenn og Íslendingar gætu einnig fjölgað í gæsluliði sínu og hafa Norðmenn óskað eftir því að íslensk stjórnvöld geri það. Jörundur Valtýsson hjá utanríkisráðuneytinu sagði í samtali við NFS að ákvörðun yrði tekin um það síðla í þessum mánuði.

Jon Hanssen-Bauer, sérlegur sendifulltrúi Norðmanna á Srí Lanka, er væntanlegur þangað á föstudaginn til að ræða við deiluaðila um ástandið og skipan eftirlitsins. Óvíst er þó hvort einhver niðurstaða fæst eftir þann fund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×