Erlent

Borgarastríð í Írak líklegt

Borgarastríð er mun líklegri niðurstaða í Írak en að lýðræði skjóti þar rótum að mati fráfarandi sendiherra Breta þar í landi. Þetta kemur fram í minnisblaði sem hann hefur sent Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og var lekið í breska fjölmiðla.

William Patey hefur verið sendiherra Breta í Írak frá því í fyrrasumar. Hann spáði einnig fyrir um það að landið myndi skiptast milli þjóðarbrota og má því segja að hann teljist hafa nokkuð góða hugmynd um ástandið í Írak og hvert stefni. Hann fór frá Bagdad í síðustu viku.

Breskir fjölmiðlar hafa í dag fjallað um minnisblaðið sem Patey sendi Blair forsætisráðherra og öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni þegar hann lét af störfum. Þar segir hann mun líklegra að borgarastyrjöld brjótist út í landinu en að lýðræði skjóti þar rótum á næstunni. Hann bætir því þó við að enn sé von en ástandið muni lítið batna næstu fimm til tíu árin. Minnisblaðinu var lekið í fjölmiðla og hefur utanríkisráðuneytið breska ekki viljað tjá sig um innihald þess. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði þó að liðsmenn íraskra öryggissveita bættu sig með hverjum degi sem liði.

Í minnisblaðinu segir Patey að ef forða eigi borgarastyrjöld og óstjórn þurfi að koma í veg fyrir að svokallaður Mahdi-her, sem lýtur stjórn sjíaklerksins Moqtada al-Sadr, verði að ríki í ríkinu líkt og Hizbollah í Líbanon. Það verði að setja á oddinn.

Hann segir næsta hálfa árið geta ráðið úrslitum um framhaldið líkt og hernaðaryfirvöld í Írak hafa sagt áður. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að færa mörg þúsund hermenn til Bagdad á næstu vikum sem má segja að renni stoðum undir það mat enda mikilvægt talið að tryggja öryggi í höfuðborginni. Á tæpum sólahring hafa minnst tuttugu og tveir fallið í sprengjuárásum í Bagdad. Í júlí-mánuði einum féllu rúmlega eitt þúsund almennir borgarar í átökum að sögn írakskra yfirvalda.

Jalal Talabani, Íraksforseti, tilkynnti í gær að íraskar her- og lögreglusveitir tækju við öryggisgæslu í öllum héruðum landsins fyrir lok árs. Írakar stjórna nú aðeins öryggisgæslu í einu héraði í landinu af átján.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×