Erlent

Höfuðpaurar hryðjuverkahópsins í haldi

Mynd/AP

Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaurar hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar.



Samkvæmt heimildum bandaríska blaðsins Washington Post hefur rannsókn á ráðabrugginu staðið í rúmt ár en það var í júlí í fyrra, eftir hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum, sem bresku lögreglunni barst ábending um grunsamlega hegðun nokkurra manna þar í landi. Út frá þessari ójósu ábendingu fór boltinn að rúlla og rannsóknin vatt upp á sig og endaði með handtökum í gær og í fyrradag. Tuttugu og fjórir voru þá teknir höndum. Í morgun bárust svo fréttir af því að pakistanska lögreglan hefði handtekið tvo menn í tengslum við ráðabruggið fyrir rúmri viku. Talið er að höfuðpaurarnir séu í haldi bresku lögreglunnar en fimm menn sem tengist málinu gangi enn lausir. Breska lögreglan hefur fryst innistæður á bankareikningum nítján þeirra sem eru nú í haldi.

Bandarískir og breskir sérfræðingar segja ráðabruggið allt bera þess merki að liðsmenn al Kaída hryðjuverkasamtakanna hafi komið að því.

Yfirvöld í Bretlandi hafa upplýst að mennirnir hafi ætlað að smygla sprengiefni í vökvaformi í gosflöskum um borð í vélarnar og nota síðan hvellettur sem dúlbúnar væru sem algengt raftæki.



Heimildarmaður bandaríska blaðsins New York Times segir nokkra þeirra sem handteknir voru í Bretlandi hafa ferðast til Pakistan og gögn bendi til þess að þeir hafi átt þar fund með manni sem sagður er tengjast al Kaída.

Samkvæmt áætlun hryðjuverkamannana áttu sjálfsmorðsárásir að eiga sér stað samtímis í flugvélunum á flugi frá London til Bandaríkjanna. Leyniþjónustan segir jafnframt að hryðjuverkamennirnir hafi ætlað sér að halda æfingu í dag eða á morgun og svo átti að láta til skarar skríða á allra næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×