Erlent

Bush réttir úr kútnum

George Bush rétti lítillega úr kútnum, í skoðanakönnun sem birt var eftir að hann sneri vörn í sókn, í umræðunni um Íraki og öryggismál. Meirihluti kjósenda er samt hallur undir Demókrata í þingkosningunum sem haldnar verða sjöunda nóvember.

Meirihluti Bandaríkjamanna er þeirrar skoðunar að landið sé á villigötum og nær 75 prósent telja að þingið, sem Republikanar ráða, hafi staðið sig illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×