Erlent

Fundu flak farþegavélar í Brasilíu

Björgunarvélar hafa fundið flak Boeing 737 farþegaflugvélarinnar sem leitað hefur verið að í regnskógum Amason í Brasilíu síðan í gær. Um borð voru 155 farþegar en ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi komist af.

Vélin fannst á afskekktum stað í Mato Grosso héraði í Brasilíu en björgunarmenn eru ekki enn komnir að henni. Vélin, sem var á vegum brasilíska flugfélagsins, hvarf af ratstjám um miðjan dag í gær og hófst þá strax leit. Talið er að vélin hafi rekist á minni flugvél í lofti. Þeirri vél var lent á flugvelli skammt frá þeim stað þar sem farþegavélin hvarf út af ratsjám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×