Erlent

Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar (tv.), og Björn Von Sydow, þingforseti.
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar (tv.), og Björn Von Sydow, þingforseti. MYND/AP

Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag.

Bandlag mið- og hægriflokka, undir forystu hans, vann sigur í þingkosningum í síðasta mánuði.

Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. Reinfeld er 34. forsætisráðherra Svíþjóðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×