Erlent

Carl Bildt utanríkisráðherra

Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar (tv.), og Björn Von Sydow, þingforseti.
Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar (tv.), og Björn Von Sydow, þingforseti. MYND/AP

Fredrik Reinfeldt, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun. Athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra verður utanríkisráðherra. Í ræðu á sænska þinginu sagði Reinfeldt að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og breytingar á velferðarkerfinu.

Þingið samþykkti skipan Reinfeldts í embætti forsætisráðherra í gær með 175 atkvæðum gegn 169. Bandalag fjögurra mið- og hægriflokka, undir forystu Reinfeldst, formanns Hægriflokksins, vann sigur í þingkosningum í síðasta mánuði. Reinfeldt, sem er 41 árs, er yngsti forsætisráðherra Svía síðan 1926. Hann sagði það undarlegt að hafa náð þessu takmarki og tekið við. Þetta væri mikill heiður en um leið fylgdi mikil ábyrgð.

Reinfeldt tekur við af Göran Persson, leiðtoga Jafnarmanna, en flokkur hans galt afhroð í kosningunum. Persson hefur gent embættinu í áratug. Hann óskaði Reinfeldt til hamingju með nýja starfið og óskaði honum velfarnaðar.

Það var svo í morgun sem nýji forsætisráðherrann kynnti nýja ríkisstjórn. Ráðherrar eru 22, þar af 10 konur.

Mesta athygli vekur að Carl Bildt, fyrrverandi leiðtogi Hægriflokksins og forsætisráðherra á árunum 1991 til 1994, verður utanríkisráðherra. Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður menntamálaráðherra, Maud Olofsson, leiðtogi Miðjuflokksins, verður atvinnumálaráðherra, og Göran Häggelund, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður félagsmálaráðherra.

Í ræðu sinni á þingi í morgun sagði Reinfeldt að borgaralegu flokkarnir hefðu fengið umboð frá kjósendum til að breyta Svíþjóð. Hann sagði að staðið yrði við gefin loforð um skattalækkanir og niðurskurð í velferðarkerfinu. Stefnt verði að því að skila tekjuafgangi í fjárlögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×