Erlent

Sjálfsmorðsárás í Tal Afar

Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu.

Bush Bandaríkjaforseti hefur sagt Tal Afar dæmi um bæ þar sem hersveitum sínum hafi tekist að vinna bug á uppreisnarmönnum en árásin í morgun sýnir hversu ástandið þar er ennþá slæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×