Spennan magnast á Kóreuskaga 7. október 2006 12:30
Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. Að því er fram kemur í yfirlýsingu yfirmanns herafla Suður-Kóreu var ákveðið að skjóta í átt að fimm norðurkóreskum hermönnum eftir að í ljós kom að þeir voru komnir um þrjátíu metra inn fyrir vopnahléslínuna sem skilur löndin tvö að. Stærstur hluti herafla beggja ríkjanna, samtals um tvær milljónir manna, er staðsettur við landamærin og því eru atvik á borð við þetta ekkert einsdæmi. Eftir að Norður-Kóreumenn lýstu því yfir í vikunni að þeir hygðu á tilraunir með kjarnorkusprengjur er það hins vegar litið alvarlegum augum enda er spennan á Kóreuskaganum í hámarki. Heimildir kínversku og bandarísku leyniþjónustunnar herma að allt sé til reiðu fyrir tilraunasprenginguna, líklega verður hún gerð á tveggja kílómetra dýpi í yfirgefinni kolanámu í norðurhluta landsins annað hvort á morgun eða á mánudaginn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gaf út yfirlýsingu í gær þar sem Norður-Kóreumenn voru eindregið varaðir við kjarnorkutilraunum og þeir hvattir að snúa aftur að samningaborðinu við ríkin fimm sem þeir áttu til skamms tíma í viðræðum við. Haldi þeir sínu striki geta þeir aftur á móti von á refsiaðgerðum. Stjórnvöld í Pjongjang hafa brugðist við boðum öryggisráðsins með því að kalla varasendiherra sinn hjá ráðinu heim.
Erlent Fréttir Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Sjá meira