Erlent

Vond eiginkona -og móðir

Búlgörsk kona sem hafði myrt son sinn var látin laus úr fangelsi, í síðasta mánuði, vegna þess að hún var að því komin að deyja úr krabbameini. Hún fór heim og myrti eiginmann sinn með hnífi.

Konan var dæmd í fimmtán ára fangelsi á síðasta ári, fyrir að myrða son sinn með arfasköfu meðan hann svaf. Hún hefur nú verið handtekin aftur og bíður nýrra réttarhalda. Hún hefur hótað því að ef henni verði sleppt aftur muni hún myrða hinn son sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×