Erlent

Bænir í stað boltans

Knattspyrna hefur lotið í lægra haldi fyrir trúariðkun í Nígeríu. Færa þurfti kappleik landsliðs karla sem skipað er leikmönnu 20 ára og yngri frá þjóðrleikvanginu í höfuðborginni Abuja vegna kristinnar bænasamkomu. Leikurinn fer fram á laugardaginn en samkoman hefst annað kvöld og stendur í sólahring.

Lið Nígeríumanna þarf því að mæta andstæðingum sínum frá Rúanda á öðrum velli í annarri borg. Liðin keppa um sæti á ungliðamóti Afríkuríkja sem haldið verður á næsta ári.

Aðstoðarmaður Olusegun Obasanjo, forseta, segir að hann hafi gert allt til að tryggja að knattspyrnan myndi víkja fyrir bænahaldi, enda er Obasanjo sagður afar trúrækinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×